FYRIR ÍSLENSKA MATSMENN
Þú sinnir matinu.
Matsgerð einfaldar vinnuna.
Matsgerð.is er vinnurými fyrir matsmenn sem einfaldar alla vinnu við matsgerðir.
Persónuleg kynning. Engin skuldbinding.
RB (31) 25 07 23 · Kíttun · bls. 10–12
FRÁ MATSBEIÐNI AÐ MATSGERÐ.
Þín þekking í forgrunni.
Minni tími í handavinnu.
Minni tími í innslátt, skjalavinnslu og frágang. Meira svigrúm til að sinna sjálfu matinu.
01 MATSBEIÐNIN
Frá matsbeiðni
að matsspurningum.
Kerfið les matsbeiðnina og útbýr vinnurými fyrir hverja matsspurningu. Allt er tilbúið fyrir þig til að svara, bæta við myndum og öðrum fylgigögnum.
02 SVÖRIN ÞÍN
Þú svarar
í einföldu máli.
Kerfið vísar þér leiðina að faglegu svari.
Kerfið metur:
- Hefur matsspurningunni verið svarað fyllilega?
- Er strúktúr og orðalag með besta móti?
- Er rétt að vitna til fylgigagna eða ljósmynda í þessu svari?
- Eru RB blöð sem bjóða upp á nánari lýsingu sem tengist svarinu?
03 MATSGERÐIN
Vönduð matsgerð.
Tilbúin sem PDF.
Öll vinnan þín sameinast í einni faglegri matsgerð. Svör, ljósmyndir, tilvísanir og fylgigögn eru sett saman í vandað PDF-skjal, tilbúið til yfirferðar og samþykktar.
Byrjum á
samtali.
Við höfum áhuga á að sníða lausnina frekar að þínum þörfum.
- 01
Sendu fyrirspurn
Fylltu út formið með nafni, netfangi og símanúmeri.
- 02
Fáðu kynningu
Við höfum samband, sýnum þér kerfið og förum yfir þínar þarfir.
- 03
Aðgangur að kerfinu
Að lokinni kynningu ræðum við kjör og aðgang.
Takk fyrir fyrirspurnina.
Fyrirspurnin hefur verið send. Við höfum samband vegna kynningar á Matsgerð.
GOTT AÐ VITA
Spurt og svarað.
01Fyrir hverja er lausnin?
Fyrir matsmenn og fagfólk sem vinnur að matsgerðum og vill halda utan um spurningar, athuganir, ljósmyndir og niðurstöður í einu vinnurými.
02Get ég breytt drögunum?
Já. Þú getur breytt drögum að svörum og umfjöllun, bætt við þau og lagað að þínu faglega mati. Þú yfirfer einnig tilvísanir, ljósmyndir og fylgiskjöl áður en þú samþykkir lokaútgáfuna.
03Hvernig fæ ég aðgang?
Þú sendir okkur fyrirspurn með nafni, netfangi og símanúmeri. Við höfum samband og förum yfir hvernig lausnin getur nýst þér. Aðgangur er veittur í framhaldi af því.
04Hver ber ábyrgð á faglegu mati?
Matsmaðurinn ber ábyrgð á faglegu mati. Þú ferð yfir gögnin, lagfærir textann og samþykkir niðurstöðuna áður en henni er skilað.
05Skuldbind ég mig með því að óska eftir kynningu?
Nei. Fyrirspurn um kynningu felur ekki í sér skuldbindingu. Við ræðum þarfir, kynningu og kjör áður en þú tekur ákvörðun um aðgang.
06Hvaða gögn get ég lagt inn í kerfið?
Þú leggur inn matsbeiðnina, fylgigögn málsins og ljósmyndir. Kerfið nýtir viðeigandi gögn við úrvinnslu einstakra matsspurninga og tengir þau við svörin.
07Get ég talað inn svör í stað þess að skrifa?
Já. Þú getur talað inn athuganir og svör við einstökum matsspurningum eða skrifað þau í einföldu máli. Kerfið setur efnið fram í faglegu ritmáli. Þú yfirfer drögin og getur breytt þeim.
08Hvernig metur kerfið hvort matsspurningu sé fullsvarað?
Kerfið ber svarið saman við matsspurninguna og athugar hvort öllum atriðum hennar hafi verið svarað. Það bendir á það sem vantar eða þarfnast frekari skýringa og rökstuðnings, svo þú getir bætt við svarið.
09Hvernig virka tilvísanir í fylgigögn og ljósmyndir?
Kerfið leggur mat á hvort rétt sé að vísa í fylgigögn eða ljósmyndir og setur inn viðeigandi tilvísanir. Það heldur utan um tengingu við rétt gögn og blaðsíðutal. Þú yfirfer tilvísanirnar með svarinu áður en þú samþykkir lokaútgáfuna.
10Hvernig nýtast RB-blöð við gerð matsgerðar?
Kerfið er með innbyggt safn RB-blaða og stingur upp á blöðum sem tengjast efninu sem þú ert að fjalla um. Þú ákveður hvort bæta eigi við umfjöllun úr þeim og yfirfer textann áður en hann verður hluti af matsgerðinni.
11Get ég ráðið útliti og uppsetningu matsgerðarinnar?
Kerfið sér um faglega uppsetningu svara, ljósmynda, tilvísana og fylgiskjala í PDF-matsgerð. Þú yfirfer lokaútgáfuna áður en henni er skilað. Sérstakar óskir um útlit og uppsetningu má fara yfir í kynningu.
12Hvernig er farið með gögnin sem ég set inn?
Vinnsla málsgagna er í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga og vinnslusamning félagsins.
13Hvað kostar að nota Matsgerð?
Mánaðaráskrift er 29.900 kr. + VSK. Innifalin er líkananotkun að verðmæti 10.000 kr. í hverjum mánuði, sem ætti að duga fyrir alla hefðbundna notkun. Greitt er sérstaklega fyrir notkun umfram þá fjárhæð.